Við höfum fengið heimild til að standa fyrir skemmtun í íþróttahúsinu á sumardaginn fyrsta. Til þess höfum við fengið styrk frá bæjarfélaginu og velvilja nokkurra félaga til að vera með uppákomu okkur að kostnaðarlausu. Leikfélagið ætlar að sýna atriði úr leikriti, kórinn verður með söngatriði og dansskólinn með dansatriði. Við munum verða með kaffisölu og sjoppu á staðnum sem 4 krakkar taka að sér að sjá um. Á sjómannadaginn verðum við með kaffisölu og basar í félagsheimilinu. Við erum með fisk til sölu fyrir þá sem vilja styrkja okkur. Krakkarnir ætla að taka að sér að slá garða hjá fólki í sumar gegn 1000 kr. Gjaldi á garð það er persónuleg söfnun hvers og eins. Það stendur einnig yfir dósasöfnun hjá hópnum.
Ef þið fáið frekari hugmyndir af fjáröflunum þá endilega komið þeim á framfæri.
Sunday, March 29, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment