Sunday, March 22, 2009

Ferðin til Dobrich í Búlgaríu

Komið þið sæl og blessuð Vopnfirðingar og aðrir landsmenn.

Til stendur að fara í vinarbæjarheimsókn til Dobrich í Búlgaríu. Ferðin á sér stað dagana 14.nóvember til 20. nóvember. 2009.
Dagskráin í Dobrich hefst kl 13:00 þann 14. nóvember og lýkur klukkan 16:00 20. nóvember. Um dagskrá í Dobrich sjá þarlendir vinir og fyrir það þarf ekki að greiða nema fyrir gistingu.
Við þurfum þó að finna þrjá áhugverða viðburði til að fara með hópinn á. Einnig þurfum við að sjá um og greiða fyrir gistingu hópsins auk einnar máltíðar á dag meðan á vinarbæjarmótinu stendur. Okkar verkefni verður að skipuleggja ferðina frá a-ö.

Hópur fólks í Tómstundafélaginu á aldrinum 14 - 16 ára mun fara í þessa ferð. Um er að ræða 25 manns, 13 stúlkur og 12 stráka, auk tveggja fullorðinna farastjóra.


ATH. Skipulagning þessarar ferðar er verkefni í Aðferðum í tómstundafræði í HÍ. Mun það sem fram kemur hér ekki verða framkvæmt í raun og veru. Þó skipulagið verði gott :)

No comments:

Post a Comment