Við brottför
Allir þurfa að vera mættir tímanlega á Egilsstaði (kl. 18.35 þann 11. nóvember) Nokkrir foreldrar ætla að keyra börnunum þangað. Ef e-h er í vanda varðandi ferðina til Egilsstaða skal hann hafa samband við Rósbjörgu.
Við þurfum líka að gera okkur grein fyrir því að við verðum ekki ein um borð í flugvélunum á leiðinni út né heldur á leiðinni heim. Tökum því tillit til ferðafélaga okkar.
Miðvikudagur 11. nóvember 2009
Kl. 19:25 Lagt af stað með flugi frá Egilsstöðum.
Rúta frá Teiti Jónassyni sækir okkur á Reykjarvíkurflugvöll.
Gist í Skátaheimili Kópa. Frítt.
Allir hafi með sér gott nesti að heiman til að boða áður en farið verður í utanlandsflugið.
Fimmtudagur 12. nóvember 2009
Kl. 04.00 Rúta frá Teiti Jónassyni sækir okkur um nótt í Skátaheimilið og keyrir á Keflavíkurflugvöll.
Kl. 07.00 Brottför kl. 7.00 með Iceland Express vél: AEU 501
Kl. 09.50 Koma til Gatwick (að staðartíma).
Tökum Gatwick Express lest út á Victoria Station. Þar förum við í Underground Victorialine út á Green park þaðan tökum við Jubilee til Canada Water (grá leið) (Nb. East London leiðin er lokuð á þessum tíma).
Gistum á YAH – London Thameside
20 Salter RoadLondon SE16 5PR
Tel: 0845 371 9756Fax no: (+44) 20 7237 2919Email: thameside@yha.org.uk
Föstudagur 13. nóvember 2009
Kl. 04.30 Morgunverður
Kl. 05.00 Farið af stað í lestina - (Underground á Canada Water út á Green Park, tökum Picadilly (blá leið) á Heatrow).
Kl. 08.30 Brottför frá Heathrow með British Airways flug: BA 890 LHR-SOF og flug frá Sofiu Bulgaria Air : FB973 SOF – VAR.
Kl. 17.05 Komið til Varna (að staðartíma) eftir millilendingu í Sofiu
Rúta frá hótelinu sækir okkur á flugvöllinn.
Kl. 18.30 Komið til Dobrich á Bulgaria hotel þar sem við munum gista næstu 8 nætur.
Kl. 19.30 Matur á hótelinu.
Kl. 21.00 Komum okkur fyrir tökum því rólega og förum snemma að sofa eftir langt ferðalag.
Hótelið sem við gistum á
HOTEL COMPLEX BULGARIA
8 Svoboda sq.;9300 Dobrich; Bulgaria
tel.:++359 58 600 226 ;
tel./fax.:++359 58 600 176; ++359 58 601 007
E-mail:hotel@bulgaria-dobrich.com
Laugardagur 14. nóvember 2009
Kl. 8:30 Ræs
Kl. 9:00 Morgunmatur
Laus tími þangað til við förum að hitta gestgjafa okkar.
Kl. 13:00 Gestgjafar okkar taka á móti okkur í anddyri hótelsins.
Allan daginn verður skipulögð dagskrá á þeirra vegum.
Kl. 22:00 Komum til baka á hótelið. Þá fara allir að undirbúa sig fyrir háttinn.
Sunnudagur 15. nóvember 2009
Kl. 8:30 Ræs.
Kl. 9:00 Morgunmatur.
Kl. 11:00 Hittum gestgjafa okkar á Bulgaria hotel.
Kl. 12:00 Þjóðkynningardagur á hótelinu hefst. Við verðum með kynningu á Íslandi sem við höfum undirbúið. Einnig munu önnur lönd sjá um kynningar á sínum löndum og við skiptumst á að skoða þær.
Kl. 18:00 Hátíðarkvöldverður í boði gestgjafanna.
Kl. 21:00 Komum á hótelið okkar.
Kl. 23:00 Allir farnir í háttinn.
Mánudagur 16. nóvember 2009
Kl. 9:00 Ræs
Kl. 9:30 Morgunmatur
Kl. 11:00 Förum og heimsækjum
Þjóðminjasafnið í miðbæ Dobrich. Þar skoðum við siði ,venjur og lífsskilyrði mismunandi staða í Búlgaríu. Ásamt listum og menningu sérstakra þjóðarbrota landsins. Á safninu er hægt að prófa leirkeragerð sem á sér langa hefð á svæðinu. Einnig munum við fara á kaffihúsið og smakka sem meðlæti sérstaka hvíta sultu sem er nokkurskonar “þjóðarréttur” í landinu. Hittum gestgjafa okkar á safninu um kl. 13:30, þeir hafa skipulagt það sem eftir er dags. Komum á hótelið okkar um kl. 21:00. Kyrrð kl.23:00.
Þriðjudagur 17. nóvember 2009
Kl. 8:30 Ræs.
Kl. 9:00 Morgunmatur.
Kl. 10:00 Hittum gestgjafa okkar á Hótel Bulgaria (ath samræmi hvað hotel heitir).
Þeir hafa skipulagt daginn fyrir okkur með afþreyingu og veitingum.
Kl. 21:30 Komum til baka á hótelið okkar.
Kl. 23:00 Förum í háttinn.
Miðvikudagur 18. nóvember 2009
Kl. 8:30 Ræs.
Kl. 9:00 Morgunmatur.
Kl. 10:00 Förum í gamla bæinn í Dobrich skoðum þar götulífið og gamlar byggingar eins og klukkuturninn og Orthodox kirkjuna.
Fimmtudagur 19. nóvember 2009
Kl. 8:30 Ræs.
Kl. 9:00 Morgunmatur.
Kl. 11:00 Hittum gestgjafana niðri á hótelinu okkar.
Skipulögð dagskrá á þeirra vegum allan daginn.
Kl. 21:00 Komum á hótelið okkar Bulgaria hotel.
Kl. 23:00 Allir farnir í háttinn
Föstudagur 20. nóvember 2009
Kl. 8:30 Ræs.
Kl. 9:00 Morgunmatur.
Kl. 10:00 Hittum gestgjafa okkar niðri á hótelinu.
Kl. 16.00 Skipulagðri dagskrá lokið í Dobrich
Laugardagur 21. nóvember 2009
Kl. 02.00 Leggjum af stað til Varna með rútu á vegum hótelsins.
Kl. 05.00 Brottför með vél frá Bulgaria Air: FB 980 til Sofiu og þaðan með
Wizz Air:W6601til Luton flugvallar í Englandi.
Kl. 11.45 Lent í Englandi. Tökum easy Bus rútu frá flugvelli til Victoria Station. Tökum þaðan neðanjarðarlestina Victoria line til Green Park og þaðan Jubilee line til Canada Water sem er rétt hjá gistiheimilinu sem við gistum á YAH – London Thameside
20 Salter RoadLondon SE16 5PR
Email: thameside@yha.org.uk
Sunnudagur 22. nóvember 2009
Kl. 15.30 Förum með neðanjarðarlestinni (circle) á Viktoria stöðina. Þar förum við í Gatwick Express sem fer á 15 mínútna fresti og er í 30 mínútur á leiðinni út á flugvöll.
Kl. 19.00 Brottför frá Gatwick með Iceland express vél: AEU 504
Kl. 22.00 Komutími til Keflavíkur. Rúta frá Teiti Jónassyni sækir okkur og keyrir okkur í í Skátaheimili í Kópavogi þar sem við gistum frítt.
Mánudagur 23. nóvember 2009
Kl. 07:30 Rúta frá Teiti Jónassyni sækir okkur í Kópavog og keyrir
út á Reykjavíkurflugvöll.
Kl. 08:30 Flug til Egilsstaða.
Kl. 09:30 Koma til Egilsstaða.
Foreldrar hafa skipulagt að sækja krakkana á Egilsstaði.
Monday, March 30, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment