Friday, March 27, 2009
Dobrich
Dobrich er gamall bær í norð- austur Búlgaríu. Bærinn hefur oft skipt um nafn í gegnum tíðina vegna átaka á svæðinu. Í dag búa 103.309 manns í Dobrich. Þar er þjóðminjasafn sem vaðveitir sögu Búlgaríu, listagallerí og „st. Georgs“ kirkja með mörgum „íkonum“ sem áhugavert gæti verið að sjá. Skammt frá Dobrich eru baðstrendur svarta hafsins sem eru vinsæll áningastaður að sumri til. Hitamismunur á vetri og sumri er mjög mikill eða frá um -20°C í janúar og allt að 40°C í ágúst. Þegar við verðum þarna er líklegt að veðrið verði svipað og á Íslandi, ef til vill aðeins kaldara en við eigum að venjast. Varna flugvöllurinn sem við lendum á er í um 40 kílómetra fjarlægð frá Dobrich.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment